20 júlí 2024
Ríkisstjórn Verkamannaflokksins hefur tekið við völdum í Bretlandi og Karl konungur flutt fyrstu stefnuræðu hennar. Í nýjum þingflokki Verkamannaflokksins eru 43 þingmenn sem kenna sig við samvinnuflokkinn um leið. Samvinnuhreyfingin í Bretlandi hefur sent frá sér viðbrögð við stefnuræðunni og telur þar ýmislegt koma fram sem líklegt sé til að efla samvinnustarf í landinu. Sjá nánar hér.